Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hafnar því að hafa þrýst á Guðmund Inga Kristinsson, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, að segja sig frá ráðherraembætti, eins og skilaboð til Guðmundar gefa til kynna. Ákvörðunin hafi verið hans eigin, meðal annars vegna heilsufars. Hún geti þó ekki svarað fyrir samskipti hans við aðra.Hún segir aftur á móti ekki einkamál ráðherra hvort hann sitji áfram í ríkisstjórn eða ekki. Málið hafi verið rætt en í þessu tilviki hafi Guðmundur Ingi sjálfur tekið ákvörðunina.„En annars hefði auðvitað þessi staða sem upp var komin, meðal annars vegna heilsufars hans, ef til vill verið rædd í þingflokki eða flokksstofnunum Flokks fólksins sem hafa auðvitað endanlegt ákvörðunarvald um ráðherraskipan á vegum flokksins.“Hægt er að hlusta á viðtalið við Kristrúnu