Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu var lögregla kölluð til vegna manns á fimmtugsaldri með hníf í versluninni og beitti hún rafbyssu til að yfirbuga hann.Eftir því sem fréttastofa kemst næst hlýddi maðurinn ekki skipunum um að leggja hnífinn frá sér og brást ekki við piparúða. Lögreglu tókst að lokum að yfirbuga manninn og koma honum í lögreglubíl.