Gheorghe Mihai Cacaliceanu, talsmaður Wolt-sendla, segir fund þeirra með forsvarsmönnum fyrirtækisins hafa gengið vel í dag. Fundurinn hófst klukkan 13:00 og átti upphaflega að vera klukkustundarlangur en honum lauk um þrjúleytið.Wolt-sendlar skipta hundruðum á Íslandi en 16. september lagði hópur þeirra niður störf til að mótmæla skertum kjörum. Cacaliceanu reiknast til að laun sendlanna hafi lækkað sem nemur um 40% á þremur mánuðum.„Stjórnendateymið hjá Wolt sýndi ástandinu skilning og þeim stendur ekki á sama um stöðuna,“ segir Cacaliceanu í samtali við fréttastofu. MISRÆMI Í BIRTINGU GREIÐSLNA VEGNA TÆKNIVANDAMÁLS Samkvæmt Cacaliceanu segir Wolt að um misskilning sé að ræða. Fyrirtækið rekur vandamálið að hluta til tæknihnökra sem hafi orðið við uppfærslu á kerfi Wolt. Það hafi leit