Tré féll í miðborg Reykjavíkur í dag og olli tjói á tveimur bílum. Þetta kemur fram í upplýsingapósti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að illviðri hafi orðið til þess að tréð féll.Þegar lögreglumenn komu á staðinn þveraði tréð veginn. Haft var samband við eigendur bílanna og tréð var fjarlægt.Mynd er úr safni.RÚV / Ragnar Visage