Rannsókn á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti tengist mögulega annarri rannsókn

Lögreglan handtók 17 í tengslum við rannsókn á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti. Sex sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins þar til á morgun. Þetta staðfestir Elín Agnes Eide Kristínardóttir en mbl greindi fyrst frá. Hún segir rannsóknina flókna og viðamikla.„Þetta er rannsókn sem hefur staðið yfir í einhvern tíma og fléttast mögulega inn í aðra rannsókn,“ segir Elín Agnes en aðspurð vildi hún ekki tjá sig um hvaða rannsókn væri átt við.Fréttastofa greindi frá því á þriðjudaginn að lögregla hefði ráðist í samhæfðar aðgerðir og handtekið nokkurn fjölda fólks.Á meðal hinna handteknu hafi verið þekktir brotamenn. Einn þeirra er Atli Freyr Fjölnisson, sem þegar situr í varðhaldi vegna aðildar að Straumsvíkursmyglinu, stærsta kókaínsmygli Íslandssögunnar, í sumar og var hann handtek
Rannsókn á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti tengist mögulega annarri rannsókn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd