Laxveiði gekk talsvert betur í ár en í fyrra, sér í lagi á Vesturlandi. Í stærstu ánni veiddust um þúsund fleiri laxar en síðasta sumar. LAXVEIÐIN GLEÐST YFIR BLAUTU SUMRI „Í fyrra var eitt versta laxveiðisumar sem mælingar ná yfir þannig að sem betur fer var sumarið í ár heilt yfir mjög gott, sérstaklega á Vesturlandi,“ segir Jóhann Helgi Stefánsson, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga.Aðspurður segir Jóhann í raun hvorki mikið vitað um hvað olli slöku veiðisumri í fyrra né hvað hafi lagast í ár. Sumarið í fyrra var þó þurrt en meira rigndi í ár. Það hugnist laxveiðimönnum betur. Göngur hafi þó farið rólega af stað, sums staðar um tveimur vikum á eftir því sem gengur og gerist. ÞVERÁ/KJARARÁ TRÓNIR Á TOPPNUM Landssamband veiðifélaga tekur saman tölur yfir fjölda laxa sem veid