Fjölmiðlunum þremur sem Bandaríkjaforseti úthýsti hefur verið hleypt inn í Hvíta húsið á ný. Þeim var vísað frá í morgun þvert á bráðabirgðaúrskurð dómstóls í Washington D.C.Á föstudag tilkynnti Donald Trump forseti Bandaríkjanna bannið og fjölmiðlarnir þrír höfðuðu mál í kjölfarið. Trump sagðist vilja banna þá frá Hvíta húsinu því þeir segðu falsfréttir.Bráðabirgðaniðurstaða dómstólsins kveður á um að miðlarnir skuli fá aðgang að Hvíta húsinu í 14 daga þar sem aðgerð Bandaríkjaforseta brjóti líklega gegn stjórnarskrá.Það hefur verið mikið um að vera í Hvíta húsinu í dag. Trump tók á móti Xi Jinping, forseta Kína, í morgun og áttu þeir fund sem var lokaður fjölmiðlum. Þeir ræddu við fjölmiðla fyrir fundinn og Xi sagði meðal annars að tryggja þurfi að þróun gervigreindar verði ávallt undir