Tekjur Isavia lækkuðu á fyrri helmingi ársins og meðal skýringa er fall flugfélagsins Play í fyrra og að rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli hafi færst til nýs rekstraraðila. Þetta kemur fram í árshelmingsuppgjöri Isavia.Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á fyrri helmingi ársins 2026 var jákvæð um 3.338 milljónir króna samanborið við 4.245 milljónir króna fyrir sama tímabil á síðasta ári.Lækkunin milli ára nemur um 907 milljónum króna.Tekjur lækkuðu um 4.158 milljónir króna milli tímabila og námu 20.295 milljónum króna.„Lækkunina á tekjum samstæðunnar má annars vegar rekja til þess að rekstur fríhafnarverslunar á Keflavíkurflugvelli færðist frá dótturfélaginu Fríhöfninni ehf. til nýs rekstraraðila í maí 2025 og hins vegar fækkaði f