Það er ekki hlaupið að því fyrir vestræna fréttamenn að komast til Rússlands eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Bæði er það vegna viðskiptaþvingana Vesturlanda og þeirra skorða sem Rússar sjálfir setja fjölmiðlum og fjarskiptum. Jón Björgvinsson fréttaritari RÚV fékk engu að síður vegabréfsáritun til að fylgjast með nýafstöðnum þingkosningum í Moskvu. Umsókn Jóns og svissnesks kollega hans var marga mánuði hjá rússneskum yfirvöldum og reyndar var komið viku fram yfir flugið sem var bókað þegar loks fékkst jákvætt svar degi fyrir kosningarnar.Það er ekki einfalt að koma sér til Rússlands. Flug og samgöngur frá Vesturlöndum eru bannaðar. Tyrkir fljúga þangað enn og svo er hægt að fara um Serbíu, Armeníu eða Úsbekistan. Jón fór um Istanbúl og slapp inn milli drónaárása Úkraínumanna. Þótt t