Það fer ekki fram hjá þeim foreldrum sem hafa börn í íþróttum að sjálfboðavinna skiptir gríðarlegu máli fyrir starfsemi íþróttafélaga. Sjálfboðavinna foreldra og aðstandenda iðkanda er lífæð fyrir íþróttastarfið. Við borgum æfingagjöld, sem hafa hækkað töluvert síðustu misseri og mörg okkar sinnum sjálfboðavinnu á þeim mælikvarða að ótrúlegt sé að eina greiðslan sé að íþróttastarfið gangi smurt fyrir sig. Aðstandendur og iðkendur sem nú æfa í Egilshöll í eigu Heima fasteignafélags, þurfa nú að greiða fyrir bílastæði. Stjórnir deilda sem leigja aðstöðu af Heimum hafa reynt eftir fremsta megni að koma áhyggjum sínum um þetta fyrirkomulag á framfæri.