Margt bendir til þess að við séum á leið í kreppu undir oki verðbólgu og hárra vaxta. Stýrivextir eru komnir í 8%, verðbólgan hefur verið yfir 5% átta mánuði í röð og hagkerfið er farið að dragast saman. Atvinnuleysi eykst og raunverð húsnæðis hefur lækkað mánuðum saman. Seðlabankinn og ríkisstjórnin virðast með stefnu sinni vera að þvinga hagkerfið í samdrátt. Það mun koma samfélagi sem byggir á hagvexti í óefni.