Íslensk málnefnd kallar eftir vitundarvakningu um mikilvægi þess að samskipti við börn fari í meiri mæli fram á mæltu máli og augliti til auglitis. Þörf sé á því til að efla málskilning þeirra, vekja samkennd og auka færni í daglegu lífi.Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem nefndin hefur sent frá sér.Í ályktuninni er bent á að flestir Íslendingar séu reglulega með snjalltæki við hönd og vegna þessa hafi dregið úr venjulegum samskiptum á móðurmáli barna.Börn sem enn þá séu að tileinka sér tungumálið eyði drjúgum tíma í tölvuleikjum þar sem samskiptin fara fram á ensku og það hafi skaðleg áhrif á málþroska þeirra.Fullorðið fólk sé síst góðar fyrirmyndir því það eyði sjálft drjúgum tíma fyrir framan skjáinn, jafnvel á kostnað beinna samskipta við börn. STJÓRNVÖLD ÞURFA AÐ GERA B