Veðurstofa ÍslandsVeðurstofan varar við úrkomu og auknum líkum á skriðuföllum á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum. Talsverð úrkoma er þar og heldur áfram fram á sunnudag og mánudag. Á morgun kólnar og úrkoma gæti fallið sem snjór eða slydda til fjalla, að því er segir í tilkynningu.„Óvissa ríkir í veðurspánni um úrkomuform og nákvæma leið lægðarinnar yfir landið. Samt sem áður benda líkanreikningar til þess að uppsöfnuð úrkoma verði töluverð á svæðinu. Vegakerfið á Vestfjörðum og Ströndum liggur að stórum hluta undir bröttum hlíðum og skyndilegar yfirborðshreyfingar, svo sem grjóthrun, aurskriður og jarðvegsskriður, geta truflað samgöngur.“