Veðurfræðingur segir að lægðagangur haustsins sé hafinn. Gular viðvaranir hafa verið í mörgum landshlutum og fleiri eiga eftir að bætast við.„Það hefur heldur dregið úr veðurhæðinni hérna sunnanlands núna sem náði hámarki í morgun. Það er ennþá nokkuð hvasst víða og sömuleiðis á Vesturlandi þó það séu engar vindaviðvaranir þar. Eina vindaviðvörunin sem er í gildi er á miðhálendinu,“ segir Þorsteinn V. Jónsson veðurfræðingur.„Svo eru viðvaranir fyrir úrkomu á Suðausturlandi og Austfjörðum. Þar er verið að vara við auknu afrennsli og vatnavöxtum, að það geti eitthvað hrunið á vegina. Það er í allan dag alveg fram á kvöld, en það koma inn viðvaranir vegna úrkomu og vinds á Vestfjörðum með kvöldinu og sömuleiðis á Ströndum. Úrkoman er að færast á Norðvesturlandið, og vindurinn sömuleiðis.“Erum