Fá ekki aðgang að Hvíta húsinu þrátt fyrir skipan dómstóls

Þrátt fyrir bráðabirgðaúrskurð dómstóls um að gefa eigi fjölmiðlunum CNN, MS NOW og Politico aðgang að Hvíta húsinu var þeim ekki hleypt inn í morgun. Samkvæmt miðlunum sjálfum vísaði lífvarðasveit forsetans þeim á brott.Bráðabirgðaniðurstaða dómstólsins kveður á um að miðlarnir skuli fá aðgang að Hvíta húsinu í 14 daga þar sem aðgerð Bandaríkjaforseta brjóti líklega gegn stjórnarskrá.Á föstudag tilkynnti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, bannið og fjölmiðlarnir þrír höfðuðu mál í kjölfarið. Trump sagðist vilja banna þá frá Hvíta húsinu því þeir segðu falsfréttir.Það verður mikið um að vera í Hvíta húsinu í dag. Klukkan tvö í dag að íslenskum tíma tekur Trump á móti Xi Jinping, forseta Kína, í Hvíta húsinu og þeir segja nokkur orð við fjölmiðla.Fundurinn, sem er lokaður, hefst um kl. 15
Fá ekki aðgang að Hvíta húsinu þrátt fyrir skipan dómstóls

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd