Sautján manns voru handteknir í samhæfðum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þriðjudaginn 22. september. Þetta staðfesti lögreglan í samtali við fréttastofu. Sex þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna og eru allir í einangrun. Tíu manns voru handteknir til viðbótar við sexmenningana, allir sama dag. Lögregla gat ekki að svo stöddu sagt til um stöðu þeirra tíu í málinu.