Bókaklúbbur þjóðarinnar var formlega stofnaður í Kringlunni í hádeginu. Tilgangurinn er að auka lestraráhuga landsmanna. Miðstöð íslenskra bókmennta stendur fyrir bókaklúbbnum og fyrirtækjaáskoruninni Látum bókina ganga.Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar íslenskra bókmennta, segir alla landsmenn skráða í bókaklúbbinn. „Við erum öll skráð í bókaklúbbinn með því að vera hluti af þjóðinni.“Allar upplýsingar um bókaklúbbinn eru á vefsíðunni Bókastund.is. Þar er hægt að skrá sig formlega í klúbbinn og fá upplýsingar um bækur næstu 12 mánaða. Fyrsta bókin sem Bókaklúbbur þjóðarinnar ætlar að lesa er Tilfinningar eru fyrir aumingja eftir Kamillu Einarsdóttur.„Þetta er í raun og veru svona samfélag sem við erum að búa til.“Fólk getur rætt um bækurnar sín á milli en svo verða líka um