Hundruð námsmanna gengu um götur Nýju Delí á miðvikudag og mótmæltu eftir að 17 ára stúlka greindi frá því að þrír menn í gervi lögreglumanna hefðu nauðgað henni í almenningsgarði í borginni þar sem hún fagnaði afmæli sínu ásamt vini. Þrír menn hafa verið handteknir.