Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins beindi hörðum orðum að Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og ríkisstjórninni allri í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag.Guðrún spurði Ingu út í þau gögn sem nú eru fram komin um þrýsting sem Guðmundur Ingi var beittur í aðdraganda þess að hann sagði af sér sem ráðherra.„Það er fátt farið að koma mér á óvart þegar kemur að Flokki fólksins,“ sagði Guðrún. „Hvernig hæstvirtur ráðherra stýrir sínum flokki og ræður og rekur þingmenn og ráðherra eins og henni einni sýnist kemur í raun engum við.“Guðrún sagði að draga þurfi fram í sviðsljósið „afskræmingar og blekkingarleik“ ríkisstjórnarinnar þegar gengið hefði verið á eftir svörum um afsögn Guðmundar Inga.„Nú er það skjalfest í skilaboðum fyrrverandi aðstoðarmanns sem er jafnfra