Litlu munaði að aurskriða lenti á rútu í Landmannalaugum

Tvær skriður féllu í Landmannalaugum eftir hádegi. Litlu munaði að önnur skriðan hafnaði á rútu. Hún hefði líklega endað ofan í á segir yfirlandvörður.Lítil malarskriða féll á bílastæðið áður en ekið er yfir Námskvísl og önnur stærri aurskriða féll á veginn 50 metrum áður en komið er á bílastæðið. Anca Elena Cristea, yfirlandvörður í Landmannalaugum, segir að rútubílstjóri hafi séð seinni skriðuna í baksýnisspeglinum þegar hann keyrði inn á bílastæðið.Það hafi því munað litlu að skriðan lenti á rútunni. Anca segir að ef skriðan hefði lent á rútunni hefði hún líklega endað ofan í ánni. Vegurinn liggur milli hlíðarinnar og árinnar.Anca segir að mikil úrkoma hafi verið í Landmannalaugum í dag og rok. Gul veðurviðvörun er á miðhálendinu, og reyndar víðar, vegna storms og rigningar.Skriðan loka
Litlu munaði að aurskriða lenti á rútu í Landmannalaugum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd