Aðalmeðferð hafin í máli Þorsteins Más gegn Seðlabankanum

Aðalmeðferð í skaðabótamáli Þorsteins Más Baldvinssonar, fyrrverandi forstjóra Samherja, hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þorsteinn höfðaði málið fyrir þremur árum en það á rætur að rekja til húsleitar hjá Samherja 2012 vegna gruns um brot á gjaldeyrislögum.Þorsteinn Már beindi erindi til Persónuverndar árið 2020 og kvartaði yfir varðveislu persónuupplýsinga um hann hjá Seðlabankanum og miðlun þeirra til héraðssaksóknara.Héraðssaksóknari hafði áður óskað eftir því að fá gögnin afhent og Seðlabankinn varð við þeirri beiðni.Þorsteinn Már benti á að gagnaöflunin hefði farið fram í tengslum við rannsókn stjórnsýslumáls sem hafði lokið 2016, eða í síðasta lagi í árslok 2018, þegar Hæstiréttur kvað upp sinn dóm í því máli. Því hefði Seðlabankanum borið að eyða gögnunum, enda væru þau ekk
Aðalmeðferð hafin í máli Þorsteins Más gegn Seðlabankanum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd