Íbúum í Setberginu í Hafnarfirði brá verulega síðdegis í gær þegar lögregla veitti Hopp-deilibíl eftirför í hverfinu og um tíma var báðum ökutækjum ekið á öfugum vegarhelmingi á miklum hraða. Telja þeir mikla mildi að ekki hafi farið verr og telja ljóst að hættuástand hafi skapast.