Nýtt áhættumat frá leyniþjónustu danska hersins gerir ráð fyrir að ógnin frá Rússlandi verði meiri á næstu mánuðum gagnvart NATO og Vesturlöndum. Þetta kom fram á blaðamannafundi í morgun með varnarmálaráðherra ásamt yfirmönnum hersins og leyniþjónustunnar.Á fundinum í Kaupmannahöfn í morgun var fjallað um nýtt áhættumat FE, sem er leyniþjónusta danska hersins. Þar kom fram að undanfarna mánuði hefði Rússland aukið fjölþáttahernað í Evrópu og að slíkar árásir yrðu tíðari á næstu mánuðum.Rússar halda áfram árásum gegn NATO og Vesturlöndum á næstu mánuðum og ógnin verður meiri, samkvæmt nýju áhættumati frá leyniþjónustu danska hersins. Staðan hefur ekki verið alvarlegri frá lokum kalda stríðsins segir varnarmálaráðherra Danmerkur.Þá er átt við óhefðbundnar árásir eins og að senda dróna inn í