Skemmuþak ætlaði af í heilu lagi

Björgunarsveit. Myndin tengist fréttinni ekki beint.RÚVBjörgunarsveitir frá Stokkseyri og Árborg sinntu útkalli vegna skemmuþaks sem virtist ætla að fjúka af í heilu lagi.Skemman er við bóndabæ austan við Stokkseyri. Björgunarsveitarfólk batt þakið niður og festi við dráttarvél í skemmunni.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að dregið hafi úr aðstoðarbeiðnum eftir því sem leið á morguninn, en björgunarsveitir á Hvolsvelli og Hellu sinntu nokkrum útköllum vegna foks í morgun.
Skemmuþak ætlaði af í heilu lagi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd