Kengúrur á flótta á Jótlandi

Kengúrur. Myndin tengist fréttinni ekki beint.EPA / GRZEGORZ MICHALOWSKIVegfarendur í Give á Jótlandi eru beðnir um að sýna aðgát af æði sérstökum ástæðum. Danska ríkisútvarpið greinir frá því að lögreglunni á Jótlandi hafi borist fjöldi tilkynninga frá vegfarendum sem sáu kengúrur á ferð á þessum slóðum.Þrjár kengúrur sem eru í einkaeign sluppu úr vistarverum sínum í Givskud norðan við Vejle á þriðjudaginn. Það gæti reynst þrautinni þyngri að ná kengúrunum sem eru eflaust hoppandi kátar með nýfengið frelsi. Hægt er að sjá myndskeið sem vegfarandi náði af einni kengúrunni í frétt DR.Lögreglan sagði í gær að hún myndi ekki grípa til aðgerða nema ef dýrin skapa hættu fyrir vegfarendur.
Kengúrur á flótta á Jótlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd