Mér þykir mjög vænt um SÁÁ og þá starfsemi sem samtökin hafa byggt upp og leitt í gegnum áratugina, íslensku samfélagi til mikilla heilla. Ég ber mikla virðingu fyrir öllu því fólki sem hefur lagt þar hönd á plóg starfsfólki, stjórnendum, félagsmönnum, sjálfboðaliðum og almenningi sem hefur stutt starfsemina.