Það er hvassviðri og rigning víða um land og gular viðvaranir í gildi. Veðrið hefur áhrif á undirbúning U21 landsliðsins sem er að fara að mæta Frakklandi á Þróttarvellinum í Laugardal á morgun. Liðið átti að æfa í Laugardalnum í dag en vegna veðursins hefur æfingin verið færð inn í Egilshöllina í Grafarvogi.