Beinagrind sem fannst við fornleifauppgröft á Grænlandi í sumar staðfestir kenningar fræðimanna um að rústir sem eru þar nærri séu kirkjurústir. Ritzau fréttaveitan greinir frá.Danskir fornleifafræðingar fundu beinagrindina í ágúst í Qinngua nærri Narsarsuaq, skammt frá Bröttuhlíð Eiríks rauða. Rúm 60 ár eru síðan kirkjurústir norrænna manna fundust síðast á Grænlandi. Þær kirkjur voru frá víkingatímanum en þessi kirkja er stærri og talið er líklegt að hún hafi verið byggð fyrir 1450. TÖLDU RÚSTIRNAR VERA AF KIRKJU EN ENGINN FANNST KIRKJUGARÐURINN Kenningar voru um að umræddar rústir væru kirkjurústir því rétthyrndur steinveggur er umhverfis steinbyggingu í miðjunni. Það var erfitt að sannreyna að þetta væru kirkjurústir því enginn kirkjugarður fannst þar nærri.Fornleifauppgröftur fór f