Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan

Pakistanski herinn gerði loft- og drónaárásir á tíu mismunandi stöðum í Afganistan í nótt.Ráðherra upplýsingamála í Pakistan, Attaullah Tarar, greindi frá árásunum í færslu á X. Hann sagði árásirnar beinast að griðastöðum hryðjuverkamanna og hafi takmarkast við hernaðarleg skotmörk sem tengjast tilraunum til árása á Pakistan.Íbúi í Kandahar greindi frá því við fréttaveituna AFP að árás hafi verið gerð á miðborg borgarinnar og eldur hefði brotist út í kjölfarið. Kandahar er heimaborg æðsta leiðtoga talibana, Hibatullah Akhundzada. VOPNAHLÉ HEFUR EKKI HALDIST Nokkuð hefur verið um átök á landamærum Afganistan og Pakistan undanfarna mánuði. Átökin stigmögnuðust í febrúar og þá gerði pakistanski herinn loftárásir á Kabúl og Kandahar. Átök héldu áfram þó einkum við landamærin og hundruð alme
Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd