Bandaríkin leggja 267 milljónir dala til baráttu gegn ebólu

Bandaríkjastjórn ætlar að leggja til aukaframlag upp á 267 milljónir dala til baráttunnar gegn ebólaveiru í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Greint var frá þessu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær.Í yfirlýsingu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu segir að Bandaríkin hafi alls lagt til 887 milljónir í heilbrigðis- og mannúðaraðstoð í Kongó til að bregðast við faraldrinum.Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, kallaði eftir framlögum upp á 1,1 milljarð bandaríkjadala í síðasta mánuði í neyðaraðstoð vegna faraldursins sem enn heldur áfram að breiðast út í landinu.Yfir 3.600 hafa farist úr ebólu og yfir 7.500 hafa greinst með veiruna í Kongó síðan í maí. Þetta er versti ebólufaraldur sem hefur komið upp í landinu.
Bandaríkin leggja 267 milljónir dala til baráttu gegn ebólu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd