Ekki von á frekari aðgerðum til að lækka eldsneytisverð

Íslensk stjórnvöld lækkuðu í vor virðisaukaskatt á eldsneyti vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs og lækkaði lítrinn af bensíni og dísil um 26 til 32 krónur. Sú hækkun gekk til baka þegar aðgerðin rann út um mánaðamót. Frekari aðgerða er ekki að vænta segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.„Við reiknuðum auðvitað með því að olíuverð myndi hækka miklu meira en það gerði. Síðan er það þannig að kaupmáttur íslenskra heimila hefur vaxið mjög mikið á undanförnum árum.“Daði segir að vegna kaupmáttarins hitti þetta ekki íslenskan almenning fyrir með sama hætti og í mörgum Evrópuríkjum þar sem laun hafa nánast staðið í stað síðan fyrir covid.„Þannig að við getum sagt að þetta er erfitt fyrir íslensk heimili og ég sýni því fullan skilning en þetta er ekki næstum jafn erfitt fyrir í
Ekki von á frekari aðgerðum til að lækka eldsneytisverð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd