Komin er nokkuð skýr mynd af því hvað olli efnaleka í fiskvinnslu á Óseyri á Akureyri í dag. Klórgas myndaðist þegar stíflueyðir blandaðist við annað þrifaefni. Þetta segir Maron Berg Pétursson, varaslökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á Akureyri.Fjórir voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar eftir að hafa fundið fyrir einkennum í öndunarfærum.Það voru mannleg mistök sem orsökuðu lekann en starfsmenn höfðu fyrr um daginn hellt stíflueyði í niðurfall í von um að losa um teppu. Þrifhópur kom svo síðdegis og ætlaði að hefja þrif en þegar þrifaefninu var hellt á gólfin kom strax í ljós að ekki var allt með felldu.Slökkviliðið notaðist við klórgasmæla og þegar vinnu á vettvangi lauk mældist ekkert klórgas í loftinu lengur. Margeir Björgvinsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra,