Hafa nokkrar vikur til að koma starfsemi SÁÁ í eðlilegt horf

Alma Möller heilbrigðisráðherra segir þá stöðu sem uppi sé innan SÁÁ vonbrigði, traust á stjórn SÁÁ hafi beðið hnekki.„Það er ekkert útilokað fyrir stjórnina að snúa þessari þróun við og nái tökum á stöðunni.“Deilurnar innan SÁÁ hafa verið hatrammar og að mörgu leyti illskiljanlegar. Stjórn félagsins er sökuð um að hafa reynt að hafa áhrif á faglega heilbrigðisþjónustu, forstjórinn, yfirlæknir og fleiri lykilstarfsmenn hafa horfið frá störfum. Stjórnin situr samt sem fastast og hefur ráðið nýja yfirmenn en áfram ganga skeyti á milli þess fólks sem telur sig málið varða.Stjórn SÁÁ hefur nokkrar vikur til þess að koma meðferðarstarfseminni í eðlilegt horf segir heilbrigðisráðherra. Ljóst sé að traust á stjórn SÁÁ hafi beðið hnekki. Skapa þurfi traust með því að uppfylla samning og koma þjónu
Hafa nokkrar vikur til að koma starfsemi SÁÁ í eðlilegt horf

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd