Uppsagnir í heilbrigðisráðuneytinu

Tveimur starfsmönnum í heilbrigðisráðuneytinu hefur verið sagt upp störfum. Báðir starfsmennirnir gegna stöðu sérfræðings í ráðuneytinu. Þetta staðfestir Margrét Erlendsdóttir upplýsingafulltrúi ráðuneytisins.Hún segir að greint hafi verið frá uppsögnunum á starfsmannafundi í dag. Starfsmönnunum hafi verið sagt upp til þess að mæta aðhaldskröfu ríkisstjórnarinnar, sem hefur áhrif á stofnanir ríkisins þar á meðal ráðuneytin.
Uppsagnir í heilbrigðisráðuneytinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd