„Fjölmörg heit mál sem brenna á sveitarfélögunum“ til umræðu á landsþingi

Það var þrautin þyngri að koma öllum þingfulltrúum landsþings til Akureyrar í dag sökum verkfalls flugvirkja. Sambandið hafði þó vaðið fyrir neðan sig og var með rútu til taks fyrir þingfulltrúa af höfuðborgarsvæðinu í dag.„Það var ekki vandræðalaust. Enda treysta menn á flugið. Þarna finnur maður að flugið er almenningssamgöngurnar innanlands að hluta til. Þannig að fólk keyrði, alls staðar að af landinu og átti notalega stund í fallegu landi, það er ekki vandræðin. En ég held að það séu allir komnir, ég sé ekki betur,“ segir Jón Björn Hákonarson fráfarandi formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Ný stjórn verður kjörin á þinginu og kosið var um nýjan formann í júní. Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ tekur við embættinu á föstudaginn.„Ég líka bara kveð þetta sáttur. Von
„Fjölmörg heit mál sem brenna á sveitarfélögunum“ til umræðu á landsþingi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd