Quang Lé er frjáls ferða sinna eftir að hafa sætt rúmlega tveggja ára löngu farbanni. Þetta staðfestir Sveinn Andri Sveinsson verjandi hans. mbl greindi fyrst frá.Sveinn Andri segir farbann yfir Lé hafa runnið út 1. september en ekki hafi verið farið fram á áframhaldandi farbann yfir honum. Lé er meðal annars grunaður um mansal, skjalafals og peningaþvætti.Héraðsdómur Reykjavíkur hafði framlengt farbann yfir honum til 23. september í júlí en Landsréttur stytti það til 1. september. Sveinn Andri segir það hafa verið ákveðna vísbendingu um að eitthvað þyrfti að gerast í rannsókninni til þess að það yrði framlengt að nýju.Sveinn segir Lé enn hér á landi 23 dögum eftir að farbanninu var aflétt, enda sé öll hans fjölskylda og líf hér.„Sem sýnir bara hvað þetta var algjörlega ónauðsynlegt.“Staða