Ísfélagið hefur sagt upp sextán starfsmönnum í rækjuvinnslu fyrirtækisins á Siglufirði. Aðstoðarforstjóri segir ástæðuna vera hráefnisskort, en stefnt sé á að hefja vinnslu á ný með vorinu.Vefmiðillinn Trölli.is sagði fyrstur frá þessu.Sextán starfsmönnum í rækjuvinnslu Ísfélagsins var greint frá þessu í gær og uppsagnirnar taka gildi um áramót. Í vinnslunni á Siglufirði hefur fyrst og fremst verið unnið úr norskri kaldsjávarrækju síðustu ár eftir að veiðar á Íslandsmiðum minnkuðu, en í ár fékkst minna af hráefni erlendis frá en undanfarin ár. Rækjan er keypt að sumri og þá birgja vinnslurnar sig upp til að vinna úr henni að vetri.Ólafur H. Marteinsson er aðstoðarforstjóri hjá Ísfélaginu. > „Við sáum bara fram á það að eftir áramót þá munum við ekki hafa hráefni til vinnslu næstu 2 til 3