Forstjóri Icelandair segir óskynsamlegt að beita verkföllum gegn félaginu í kjaradeilu eins og staða efnahagsmála er. Hann vonar þó að betri taktur náist í samtölum við flugvirkja næstu vikur. Formaður flugvirkjafélags Íslands segist upplifa meiri vilja frá Icelandair til að ná sátt.Flugvirkjafélag Íslands aflýsti fyrir hádegi verkfalli sem hófst á miðnætti. Skömmu áður hafði ríkisstjórnin samþykkt að kalla þing saman og leggja fram frumvarp að lögum gegn verkfallinu. „NÚ LOFA MENN AÐ GIRÐA SIG Í BRÓK“ Óskar Einarsson formaður flugvirkjafélagsins sagði að ákveðið hefði verið að aflýsa vinnustöðvun, að sinni, að beiðni Icelandair og í samráði við ríkissáttasemjara.„Fyrirtækið biðlaði til okkar í morgun og hafði samband og óskaði innilega eftir því að setjast niður,“ segir Óskar.Hvað á að