Fjórir fluttir á sjúkrahús vegna klórgasmengunar á Óseyri

Fjórir hafa verið fluttir til aðhlynningar vegna efnaleka á Óseyri. Grunur er um klórgasmengun, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.Efnaleki kom upp í fiskvinnslu á Óseyri á Akureyri í dag. Lögreglu barst tilkynning um lekann um tuttugu mínútur yfir fjögur. Í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra kemur fram að lögregla og slökkvilið séu að vinna á vettvangi. Lögreglan biðlar til fólks um að halda sig fjarri Óseyri á meðan unnið er á vettvangi.
Fjórir fluttir á sjúkrahús vegna klórgasmengunar á Óseyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd