Bæjarstjórn Akraness hefur ákveðið að færa móttöku fyrir pappír og plast úr bænum og á móttökustöð Gámu í um fjögurra mínútna akstursfjarlægð. Bæjarstjórinn segir íbúa vilja hafa þjónustuna nálægt en íbúar sem bjuggu næst grenndarstöðvunum hafi verið óánægðir. ÓNÆÐI OG ÓÞRIFNAÐUR FYLGIR GRENNDARSTÖÐVUNUM Þrjár grenndarstöðvar hafa verið fyrir pappír og plast á Akranesi, hjá Bíóhöllinni, Byggðasafninu og á Dalbraut. Stöðvarnar voru settar upp til bráðabirgða.Í síðustu viku tilkynnti Akraneskaupstaður áform um að fjarlæga grenndarstöðvarnar við Bíóhöllina og Byggðasafnið og ráðast í endurbætur á stöðinni við Dalbraut. Þar yrði þjónusta aukin, veggeiningar settar upp ásamt bættri lýsingu og myndavélavöktun.„En eftir nánari skoðun og eftir samtal við íbúa við grenndarstöðina þar sem við ætl