Úr varaliði Sindra í U21 á þremur árum - „Á fullt inni"

„Ég hef alltaf verið kallaður Freysi," sagði U21 landsliðsmaðurinn Freyr Sigurðsson þegar Fótbolti.net ræddi við hann í dag. Hann er nú að undirbúa sig fyrir komandi leiki með U21 landsliðinu í undankeppni EM. Fyrsti leikur er á Pepsi vellinum í Laugardal á föstudag gegn sterku liði Frakka. Freysi er tvítugur miðjumaður Fram sem hefur nokkrum sinnum verið valinn í U21 landsliðið en á enn eftir að spila með liðinu. Hann verður 21 árs í desember og hefur verið í Fram frá því að hann kom frá uppeldisfélaginu Sindra. Hann lék síðast með Sindra 2023 í 2. deild en hafði þá verið einn vetur í Fram.
Úr varaliði Sindra í U21 á þremur árum - „Á fullt inni"

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd