Heimili landsins gætu þurft að færa fórnir

Seðlabankastjóri segir að íslenskir launþegar þurfi mögulega að taka á sig hækkun olíuverðs. Staðan í hagkerfinu bjóði ekki upp á annað.Mikið umrót á alþjóðamörkuðum og vísbendingar um aukin vanskil í byggingariðnaði valda fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans einna helst áhyggjum, samkvæmt yfirlýsingu nefndarinnar í morgun. SKÝR MERKI UM KÓLNANDI HAGKERFI Nefndin segir að skýr merki séu um að hagkerfið sé að kólna. Atvinnuleysi er að aukast og nú einnig hjá íslenskum ríkisborgurum en í sumar var atvinnuleysi einkum bundið við erlenda ríkisborgara. Framboð íbúða hefur sjaldan verið meira og nýjar íbúðir seljast hægt, sem veldur byggingaverktökum vandræðum. Þar hefur borið á auknum vanskilum.Ytra umhverfið er sömuleiðis óhagfellt. Ekki sér fyrir endann á olíukrísunni og verðið á dísilolí
Heimili landsins gætu þurft að færa fórnir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd