Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við ummæli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra í hádegisfréttum í dag um að hægja þurfi á launahækkunum og að ekki sé hægt að bæta launafólki hækkun olíuverðs.Í ályktun félagsins segir að ummæli Ásgeirs um að heimilin gætu þurft að taka á sig hækkun olíuverðs veki sérstaka athygli í ljósi nýrrar skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika sem var birt í morgun. HVERGI TALAÐ UM AÐ LAUN SÉU ÓGN VIÐ FJÁRMÁLASTÖÐUGLEIKA Þar séu helstu hættur sem steðja að efnahags- og fjármálakerfinu sagðar felast í alþjóðlegum ófriði, hækkandi hrávöruverði, háum vöxtum, óróa á erlendum mörkuðum og vaxandi kerfisáhættu í byggingariðnaði. Í skýrslunni sé aftur á móti hvergi að því vikið að laun séu ógn við fjármálastöðugleika.Réttast væri að mati félaganna að seðlabanka