Loftslagsvísindamenn telja að meira en fjögur hundruð og fimmtíu þúsund manns deyi næsta hálfa árið vegna aukins hita sem veðurfyrirbærið El Niño veldur. EL NIÑO NÚ ÞEGAR FARIÐ AÐ VALDA TJÓNI El Niño er þegar farið að valda tjóni á stöðum eins og í Indónesíu og Suður-Ameríku og í gær lýsti ríkisstjóri Kaliforníu yfir neyðarástandi í ríkinu. Veðurfyrirbærið hófst í júní og verður ríkjandi þar til í lok febrúar á næsta ári.Sérfræðingar segja El Niño verða sterkari en nokkru sinni og að loftslagsbreytingar af mannavöldum auki kraft þess enn frekar. Hvað er El Niño? Við venjulegar aðstæður blása staðvindar við miðbaug frá austri til vesturs og ýta hlýjum yfirborðssjó, yfir Kyrrahaf í átt að Indónesíu og Ástralíu.Í El Niño veikjast þessir vindar eða snúast jafnvel við. Þá flæðir hlýi sjórinn