Velferð, samtök stjórnenda í velferðarþjónustu sveitarfélaga á Íslandi, eru uggandi yfir því að ríkið ætli að skera niður framlög til sveitarfélaga vegna framkvæmdar laga um þjónustu í þágu farsældar barna.Samtökin segja fjármagnið hafa verið grundvöll þess að byggja upp, manna og styrkja þjónustu í þágu barna og fjölskyldna þeirra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. GRÓFUR FORSENDUBRESTUR Velferð gerir jafnframt alvarlegar athugasemdir við að svo umfangsmikil ákvörðun skuli tekin einhliða af hálfu ríkisins, án samráðs við sveitarfélög eða heildstæðs mats á stöðu málaflokksins.Með lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, sem eru frá 2021, var sveitarfélögum falin ný og umfangsmikil verkefni, meðal annars lögfesting á hlutverkum tengiliða og málstjóra.„Frá upphaf