Náðaði franskan njósnara til að fá ólígarka af svörtum lista ESB

Ilham Aliyev, forseti Aserbaísjans, náðaði í dag franska kaupsýslumanninn Martin Ryan. Ryan var dæmdur í tíu ára fangelsi í Aserbaísjan fyrir njósnir síðasta vor, en hefur verið í haldi frá 2023. Frakkar hafa lagt mikla áherslu á að fá hann lausan.Náðunin er talin vera hluti af samkomulagi Frakka við Aserbaísjan, Úsbekistan og Tyrkland.Á móti hafi Frakkar þrýst á um að rússnesk-úsbekski ólígarkinn Alisher Usmanov verði tekinn af refsilista ESB vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Auk Usmanovs var annar rússneskur auðmaður, Mikhail Fridman, tekinn af listanum að kröfu Lúxemborgar.Þessir snúningar ollu talsverðri kergju innan ESB, en ef aðildarríkin hefðu ekki náð saman hefðu refsiaðgerðir sambandsins gegn um þrjú þúsund einstaklingum og fyrirtækjum runnið út í gærkvöldi.Á móti var aðgerðapakkinn
Náðaði franskan njósnara til að fá ólígarka af svörtum lista ESB

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd