Dele Alli var fyrir ári síðan látinn fara frá ítalska Como og hefur ekki spilað fótbolta síðan. Alli er þrítugur og var á sínum tíma ein bjartasta vonin í enskum fótbolta, spilaði mjög vel með Tottenham en svo fjaraði hratt undan ferlinum. Hann spilaði síðast keppnisfótbolta í mars í fyrra þegar hann kom inn á gegn AC Milan í leik með Como. Hann rautt spjald níu mínútum seinna fyrir brot á Ruben Loftus-Cheek. Þá hafði Alli ekki spilað í rúmlega tvö ár.