Háskólinn í Reykjavík og Háskóli Íslands hafa sameinast um að senda starfsmann til Brussel, til að fylgjast með og taka þátt í stefnumótun Evrópusambandsins hvað varðar rannsóknaráætlanir og styrkjakerfi sem menntastofnunum stendur til boða að sækja fjármagn í.Hulda Proppé, sem verið hefur rannsóknarstjóri á félagsvísindasviði HÍ, verður fulltrúi skólanna í Brussel, og hefur verið ráðin til tveggja ára í upphafi.Gert er ráð fyrir að hún hefji störf í byrjun nóvember, en skrifstofa hennar verður í Nordic House byggingunni í Evrópuhverfinu í Brussel, þar sem fjölmargar aðrar norrænar menntastofnanir og opinber samtök eru með aðstöðu.„Við erum í upphafi að hugsa þetta til tveggja ára, en vonumst auðvitað til að framhald verði á, og að aðrir íslenskir háskólar taki þátt í þessu verkefni,“ segi