Stjórnvöld hyggjast afla sér sex til sjö milljarða króna í tekjur af náttúru- og innviðagjaldi sem lagt verður á ferðamenn sem vilja fara að þremur vinsælustu ferðamannastöðunum í eigu ríkisins. Það eru Geysir, Gullfoss og þjóðgarðurinn á Þingvöllum.Þetta kemur fram í frumvarpsdrögum sem voru lögð fram til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda í dag.4.500 króna gjald verður lagt á þá sem ekki eru með skattalega heimilisfesti á Íslandi. Er þá miðað við 18 ára aldur. Ríkisfang fólks skiptir ekki máli í þessu samhengi.Skírteinið sem fæst með greiðslu þess gjalds gildir í eitt ár. Hægt er að fá ódýrara skírteini yfir veturinn, 3.000 krónur frá 1. nóvember til 31. maí.Tekjurnar af náttúru- og innviðagjaldinu eiga að verða mun meiri en bílastæðagjöld sem falla niður samhliða upptöku gjaldsins. Þjó