„Ég var alltaf að fara í Tottenham, svo lengi sem liðið myndi halda sér uppi," sagði Andy Robertson, leikmaður Tottenham, í The Overlap þegar hann ræddi um félagaskipti sín frá Liverpool til Tottenham í sumar. Skoski vinstri bakvörðurinn, sem er 32 ára, var sömuleiðis orðaður við Juventus á Ítalíu. Hann fékk önnur tilboð en ákvað að fara til Tottenham.